UM MIG
Styrkjum stöðu millistéttarinnar

Kæri Viskufélagi, ég heiti Freyr Snorrason. Ég er 28 ára gamall, alinn upp í Kópavogi en búsettur á Hlíðarenda í Reykjavík með unnustu minni og tveggja ára syni okkar.

Með framboði mínu í stjórn Visku vil ég leggja áherslu á ungt fólk og að styrkja stöðu háskólamenntuðu millistéttarinnar.

Ég er með meistaragráðu í borgarfræðum frá frjálsu háskólunum í Brussel (ULB og VUB), í grunninn er ég með BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands.

Í dag starfa ég við bæjarskipulagsmál sem verkefnastjóri á skipulagsdeild Kópavogsbæjar.