FREYR SNORRASONUM MIG

Kjósum Frey Snorrason
í stjórn Visku


UM MIG
Styrkjum stöðu millistéttarinnar

Kæri Viskufélagi, ég heiti Freyr Snorrason. Ég er 28 ára gamall, alinn upp í Kópavogi en búsettur á Hlíðarenda í Reykjavík með unnustu minni og tveggja ára syni okkar.

Með framboði mínu í stjórn Visku vil ég leggja áherslu á ungt fólk og að styrkja stöðu háskólamenntuðu millistéttarinnar.

Ég er með meistaragráðu í borgarfræðum frá frjálsu háskólunum í Brussel (ULB og VUB), í grunninn er ég með BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands.

Í dag starfa ég við bæjarskipulagsmál sem verkefnastjóri á skipulagsdeild Kópavogsbæjar.
 


ÁHERSLUR

Stækkum Visku


Það er mikilvægt að hugsa stórt og til þess þarf að vera stór og fjölga félagsmönnum.
 
Viska þarf að styrkjast til að verða raunverulegt afl í lífskjarabaráttu venjulegs fólks. 

Þannig verður Viska:

  • Burðarás í heildarstefnumótun kjaramála og veigamikið afl gagnvart atvinnurekendum.

  • Stefnumótandi í hagsmunagæslu fyrir hina háskólamenntuðu millistétt sem fer ört stækkandi. Með aukinn slagkraft í daglegri umræðu og sterkari hagsmunagæslu.

  • Leiðandi og umbótasinnað félag í lífskjara-, húsnæðis- og velferðarmálum Íslands á 21. öldinni. 

Aukum kaupmátt ungs fólks

Viska hefur greint frá því að kaupmáttur ungs fólks (30-39 ára) hefur staðið í stað í 20 ár, þar af 25 ár hjá karlmönnum. 

Í samanburði við Norðurlöndin er kynslóðaójöfnuður á Íslandi að aukast mun hraðar. 

Þessi þróun hófst eftir hrunið 2008, en hagvöxtur síðan þá hefur aðallega stafað af innflutningi fólks og vexti í láglaunastörfum á meðan hefur fólki fjölgað í háskólanámi. 

Það verður að móta nýja atvinnustefnu til að mæta þessari þróun og koma til móts við ungt fólk. 

Þar getur Viska:

  • Gert stöðnun kaupmáttar ungs fólks að forgangsmáli í kjarabaráttu. Menntun á að skila sér strax í heimilisbókhaldið.

  • Unnið að kerfislausnum í námslánakerfinu þannig að óstöðugu vaxta- og verðbólgustigi krónunnar sé ekki velt yfir á unga greiðendur.
    Vinna þarf að betri lausnum fyrir greiðendur í eldra námslánakerfi eins og greiðsluþak og bjóða yfirfærslu námslána í nýja kerfið.

  • Krafist þess að stjórnvöld móti atvinnustefnu sem tryggir að millistéttin drífi áfram hagvöxt og háskólamenntun sé metin til launa.
Eflum sjóða- og styrkjakerfið

Viska er með aðgang að sjóðum BHM en félagsmenn upplifa sjóðina óaðgengilega og missir því af tækifærum til að nýta sér þá. 

Sterkt sjóða- og styrkjakerfi er hvatakerfi. 

Viska skal:

  • Auka sýnileika sjóða svo þeir nýtist félagsfólki sem kjarabætur.

  • Samhliða stækkun félagsins stofna eigin sjóði sem bæta lífskjör félagsmanna. 
    Félagið gæti veitt tímabundna styrki fyrstu tvö ár afborgana á námslánum, stofnað nýsköpunarsjóð Visku og veitt styrki til hugmyndaþróunar á frumstigi. 
    Í þágu samfélagsins og stærra félags á almennum markaði.


Ég vil endilega heyra frá þér, hvernig telur þú að Viska geti bætt lífsgæði þín?